Viðburður
Orkuveitan Vísó!
Jæja!
Vonandi eruð þið búin að ná að skrúfa á ykkur hausinn aftur eftir Októberfest en núna á komandi föstudag verður haldin önnur útihátið í formi vísindaferðar!
Þetta er eitt stærsta vísó ársins þar sem fjöldi nemendafélaga koma saman undir berum himni og skála (hvort sem það sé áfengt eða ekki) og hafa bara ótrúlega gaman.
Fróði forseti kallar þetta eina af sínum uppáhalds vísóum svo ekki láta hana framhjá ykkur fara. Þið megið búast við að sjá fólk úr allskonar námsgreinum og því er tilvalið að tékka á vinunum á VoN hvort þeirra nemendafélag sé ekki líka að fara.
Einnig hefur spurst að Orkuveitan sé að leita að ungum Hugbúnaðarsérfræðingum svo ef það ert þú eða verðandi þú skaltu mæta vel 'put together' með ferilskránna helst í vasanum.
Stjórn Nörd hlakkar til að sjá ykkur þar og gleymið ekki að skrá ykkur þegar opnar, fyrstur kemur fyrstur fær!
P.s.
Ég hvet ykkur að prófa að skrá nýjan bíl hér fyrir neðan ef þið farið á bíl og viljið bjóða far. Ég hef aldrei séð þennan feature notaðan svo farið varlega, kannski verður til einhver bullandi stemning!