Viðburður

Gaming kvöld hjá NLG

Já þessi föstudagur verður ekki með hefðbundnu móti því við ætlum að skella okkur í alvöru partí LAN!

Vinir okkar hjá NLG ætla að bjóða okkur geggjaðan pakka díl en við fáum kynningu hjá þeim kl 18 og svo frjálsan aðgang að öllum tækjunum hjá þeim allt föstudagskvöldið á frábæru verði! 2000kr

Þau eru með allar helstu leikjatölvur í boði og við fáum einnig að ganga í racing simulatorana og VIP herbergið þar sem við getum verið með karaoke eða aðra leiki í gangi á RISA skjá.

Þau ætla líka að bjóða okkur happyhour á barnum allt kvöldið og geggjaðan bjór + skot díl.

Verið tilbúin að spila allskyns tölvuleiki: friendslop, fighting, racing, shootera og allskonar annað

Ekki blöskra þótt þið séuð ekki hardcore gamers því þetta er hugsað sem skemmtun fyrir alla!

Svo skilst mér að hægt sé að kaupa miða í partírútu sem fer frá egilshöllinni niður í bæinn þegar staðurinn lokar svo stemningin þarf aldrei að taka enda!!!

Geymið peninginn frá hádegismatarkaupum í Hámu þessa vikuna og fáið ykkur núðlur í boði Nörd í kjallaranum!(við erum líka með nokkur pizza pockets í frystinum fyrir ykkur)

Sjáumst svo hress á föstudaginn!

Next Level Gaming ehf
Föstudag 2. Okt - 18:00 til 11:59
Skráningu lokið
Skráðir: 23 af 23
Til að skrá sig á viðburð þarftu að
skrá þig inn