Viðburður

Viska Vísó!

Viska ætlar að bjóða okkur og hinum Félögunum í FV (Naglar, Vír og Vélin) í veislu!

Viska er stéttafélag miðað að nemendum en þau bjóða skráðum meðlimum ókeypis tryggingar af símum og fartölvum en þar að auki af gleraugum, myndavélum, heyrnartólum, reiðhjólum og rafhlaupahjólum. Þetta er nánast of gott til að vera satt!

En það er nefnilega frítt að skrá sig í Visku fyrir nemendur háskólans!
Fyrir áhugasama getið þið kynnt ykkur það betur hér og skráð ykkur ef þið viljið. Munið að merkja við að þið komuð frá Nörd!

Þau eru staðsett í Borgartúni sem er svona Wallstreet Íslands svo þið megið klæða ykkur í fínum fötum og búast við peningalykt 💸

Sjáumst hress og kát á Visku vísó kl 17 á fös!

Borgartún 27
Föstudag 23. Okt - 17:00 til 19:00
Skráningu lokið
Skráðir: 8 af 17
Til að skrá sig á viðburð þarftu að
skrá þig inn