Fréttir

PSA - Nördakjallarinn

Fimmtudag 5. September 2024
Elías Ver Bjarnason

Kæru Nördar,

Smá PSA varðandi nördakjallarann

Við höfum nýlega tekið eftir að sumir eru að skilja diska og glös eftir óþvegin.

Þetta er rosa illa séð hegðun og við viljum biðla til ykkar að vaska upp og ganga frá eftir ykkur sjálf. Þetta er ekki flókið, sýnum öðrum nördum tillitsemi og höldum kjallaranum okkar hreinum 💪🧼🫧

Annað, við viljum benda ykkur á að kaffivélin og tepokarnir frammi á gangi eru eign Endurmenntunar en ekki Nörd. Við erum með okkar eigin kaffivél og te inná kaffistofunni okkar þannig kaffi- og/eða teþyrstir mega endilega nota það í staðinn ☕🍵

Að lokum viljum við minnast á fyrir þau sem ekki vita að nördakjallarinn er staðsettur í kjallara Endurmenntunar HÍ. Kjallarinn er helsti samkomustaður nörda, og mörgum kærkominn, og því vonum við að þið getið notið góðs af honum á meðan námi ykkar stendur!🫶

Kveðja, stjórnin 💚